26.1.2007 | 20:20
Pólska skúringarkonan fagnar sigri!
Ég heyrði skemmtilega sögu úr einum bankanum um daginn. Þannig var mál með vexti að mörg jakkafötin settust niður að vinnudegi loknum á vinnustaðnum, til að horfa á Ísland - Pólland fyrir fram risaskjá, sötrandi bjór, í góðum fílingi og þannig var það, þar til Pólland gerði endanlega út um leikin þegar nokkrar sekúndur voru eftir.
Þegar vonbrigði voru að leggjast yfir öll jakkafötin heyrðu þeir mikil fagnaðarhóp úr hinum enda salsins! Þar var á ferðinni pólska skúringarkonan sem auðvitað fagnaði sigri sinna manna!
Mun pólska skúringarkonan einnig fagna sigri að loknum landsfundi Frjálslyndra á morgun?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.