22.2.2007 | 16:14
Niðurgreiðslur og ofurtollar á landbúnaðarvörum
Ég hef verið lengi að velta fyrir mér arfavitlausum rökum fyrir niðurgreiðslum og ofurtollum í landbúnaðarkerfinum. Nú er skýringin fundin á öllum 14 milljörðunum sem fara í þetta ónýta kerfi.
Þetta er til styðja bændur í baráttu þeirra gegn klámi!
Já, það er margt skrýtið í kýrhausnum
Hætt við klámráðstefnu hér á landi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hehe, góður!
Snorri Bergz, 22.2.2007 kl. 16:17
Þetta er svartur dagur í sögu Íslands. Við höfum skipað okkur á bekk með ríkjum þar sem mannréttindi eru ekki fyrir alla. Ef einhver heldur að koma hópsins hafi verið slæm landkyning þá gerir fólk sér ekki grein fyrir því hvað við vorum að enda við að gera. Þetta er eins og málið með hommana í Færeyjum. Þar töldu menn sig vera að hefja upp siðleg gildi.
Fannar frá Rifi, 22.2.2007 kl. 18:00
Ég sem hélt að þjóðin væri svo frjálslynd og nútímaleg, greinilega margfalt íhaldssamari en ég hélt. Oft gerum við grín að öfgatrú/öfgasiðferði sem finnst í suðurríkjum Bna, en erum svo sjálf ekkert skárri. Þetta viðbjóðslega ástand virðist tengjast þeirri forsjárhyggju og bannæði sem hefur farið vaxandi seinustu árin. Það eru tugir þúsunda fasista hér á landi sem sjá ekkert að því að þröngva eigin siðferði yfir aðra,
Svo finnst mér furðulegt að engir pólitíkusar þori að taka afstöðu með ráðstefnunni (eða einfaldlega afstöðu með eðlilegu ferðafrelsi fólks). Það eru örugglega einhverjir þingmenn sem hafa leynilega gaman af klámi, hlutföllin eru allavega slík að það er mjög ólíklegt að þeir séu allir á móti því. En hræðslan við pólitíska rétthugsun er mikil, sérstaklega rétt fyrir kosningar.
P.s. bændur eru auðvitað ekki ókunnugir fasisma, þeir eru vanir að þyggja marga milljarða af peningum sem eru teknir með valdi af þjóðinni.
Geiri (IP-tala skráð) 22.2.2007 kl. 19:34
Nú hefur Síminn sjálfur dreift klámi í gegnum heimasíðu sína www.hugi.is/kynlif til lengri tíma.
Þar fá börnin okkar aðgang að klámi og öðrum viðbjóð...
Af hverju setur enginn út á það?HÞS (IP-tala skráð) 22.2.2007 kl. 19:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.