27.1.2007 | 19:56
Hvað gerir Margrét?
Frjálslyndir sýndu mikinn dómgreindarskort í dag er þeir kusu Magnús Þór í varaformannsembættið þegar jafn glæsilegur fulltrúi og Margrét var í kjöri, sem hefur margfalt meiri kjörþokka en Magnús.
Ég skora á Margréti að ganga úr þessum flokki enda á hún ekki samleið með þeim mönnum sem nú stjórna auk þess sem stefna flokksins í innflytjendamálum geta ekki verið samræmi við skoðanir Margrétar.
Kenningar eru um að Margrét kunni að ganga til liðs við Samfylkinguna en athygli hefur vakið að Samfylkingin hefur ekki lokað sínum listum í Reykjavík. Án efa væri það mikill styrkur frá Samfó að fá Margréti, enda staða flokksins ekki sterk núna samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum.
Stendur Frjálslyndi flokkurinn undir nafni? Hvað um þjóðernissinnaði karlaflokkurinn? Væri það ekki nær lagi?
Magnús Þór kjörinn varaformaður Frjálslynda flokksins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 28.1.2007 kl. 10:17 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.