20.2.2007 | 11:57
Sigurbjörn efstur fyrir lokaumferð Meistaramóts Hellis
Sigurbjörn Björnsson leiðir með hálfum vinningi á Björn Þorfinnsson fyrir lokaumferð Meistaramóts Hellis, eftir jafntefli við Davíð Ólafsson í sjöttu og næstsíðustu umferð, sem fram fór í gærkveldi í mjög svo skrautlegri skák þar sem þeir höfðu unnið til skiptis.
Ég missti reyndar af skákinni og umferðinni vegna veikinda. Ég hef heyrt í bæði Sigurbirni og Davíð í dag og segjast þeir hafa haft unnið! Ég hlakka til að skoða skákina en mér skilst að Sigurbjörn hafi leikið alvarlega af sér í 13. leik og fengið tapað tafl, Davíð hafi svo aftur klúðrað en fengið síðar aftur unnið tafl. Sigurbjörn hafði svo jafnvel unnið tafl í lokastöðunni!
Björn Þorfinnsson vann Helga Brynjarsson og er einn í öðru sæti. Þeir tveir eru því einu mennirnir sem geta hampað titlinum. Björn yrði þá meistari í sjöunda sinn en Sigurbjörn í fyrsta sinn. Athyglisvert er reyndar að Björn hefur reyndar "bara" sigrað á mótinu þrisvar sinnum og Sigurbjörn tvisvar. Sigurbjörn var þá ekki í Helli og í bæði skiptin fékk Björn titilinn!
Nú er hins vegar Sigurbjörn í klúbbnum og getur loks hampað titlinum.
Björn hefur verið fremur heppinn með andstæðinga og eru meðalstig andstæðinga hans 2045 skákstig á meðan meðalstig andstæðinga Sigurbjarnar eru 2196 skákstig. Sigurbjörn er nú 19 skákstig í plús á meðan Björn er með eitt stig í mínus.
Í 3.-6. sæti eru Ingvar Þór Jóhannesson, Snorri G. Bergsson, sem gerðu stutt jafntefli í gær, og eru því úr leik um sigur í mótinu, Davíð og Bragi Þorfinnsson.
Í kvöld fer fram frestuð skák Hjörvar Steins Grétarsson, nýkrýnds norðurlandameistara í skólaskák, og Hallgerðar Helgu Þorsteinsdóttur.
Gott sjónvarpsviðtal við Hjörvar Stein má finna hér.
Nánari úrslit og skákir má nálgast á Skák.is og heimasíðu Hellis.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.