4.5.2007 | 21:13
Til hamingju með að vera 10.000. lesandinn!
Í verðlaun eru 10.000 kr. Ég hef reyndar ekki hugmynd um hver þú ert en ég hef vísað málinu til allsherjarnefndar til úrlausnar, hún hlýtur að geta leyst úr þessu. Geturu ekki kippt í einhverja spotta, fyrir mig Guðjón Ólafur? Ég vinn með a.m.k. tveimur Framsóknarmönnum og tapaði meira að segja fyrir öðrum þeirra í skák í dag!
Síðan fór í loftið um síðustu áramót. Reyndar er þetta minni lestur en lesa Ellý Ármanns dag hvern..........fyrir hádegi!
Athugasemdir
en félagi, þú ert ekki eins sætur og hún Ellý. Svo skrifar hún bara um brókalalla og flatlýs meðan þú skrifar um skák og pólítik. Við eigum ekki séns meðan Ellý bloggar, ekki séns
arnar valgeirsson, 5.5.2007 kl. 01:27
en ég er eiginlega viss um að ég var númer tíu þúsund. Eða eiginlega bara handviss. Algjörlega pottþéttur.
arnar valgeirsson, 5.5.2007 kl. 01:29
nei, held það hafi verið ég, ætti meira að segja að fá 10.042 krónur þar sem ég kom aftur núna
Jóhanna Fríða Dalkvist, 5.5.2007 kl. 08:38
hehe, þú ættir kannski að fara að skrifa um vini þína og sjá hvort þú hafir eitthvað í Ellý
Jóhanna Fríða Dalkvist, 5.5.2007 kl. 08:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.