Ingvar Þór með 3,5 vinning að 4 mögulegum á Kaupþingsmótinu

Sigurbjorn_IngvarIngvar Þór Jóhannesson sigraði Sigurbjörn Björnsson í fjórðu umferð meistaraflokks Kaupþingsmótsins.  Ingvar virðist vera í fínu formi og hefur nú 3,5 vinning sem venjulega myndi þýða að hann væri efstur en svo er ekki nú því enski skákmaðurinn Robert Bellin leiðir með fullu húsi eftir sigur á sigurvegara síðasta árs, Sigurðar Daða Sigfússonar, en Daði missti af jafnteflileið í endataflinu.

Ofurbloggarinn Snorri G. Bergsson er svo þriðji,  með 2,5 vinning, en skoski stórmeistarinn Colin McNab slapp úr greipum Snorra og náði jafntefli.

Loks var stöðvuð sigurganga baltensku stórmeistarann Kveynis og Miezis í stórmeistaraflokki en Guðmundur Kjartansson og Stefán Kristjánsson gerðu við þá jafntefli.  Þeir leiða engu að síður með 3,5 vinning en Svíinn, Emil Hermansson, er þriðji með 2,5 vinning.  Guðmundur og Bragi Þorfinnsson hafa 2 vinninga.   

Fimmta umferð, hefst kl. 17 í skáköllinni Faxafeni 12.  Ég hvet skákáhugamenn að fjölmenna á mótsstað!  

Í henni mætast í stórmeistaraflokki m.a. Shaw-Miezis, Kveinys-Hermansson og Stefán og Jón Viktor.

Í meistaraflokki mætast m.a. Bellin-Snorri, Ingvar-Heimir og Hörvar-Sigurður Daði. 

Nánari upplýsingar má nálgast á Skák.is og heimasíðu mótsins


Hrafn hefur hátt á skákmóti

Þessi hrafn var þó ekki jökulsson, heldur svartur á lit og heldur minni en krunkaði hátt!


Barist á Kaupþingsmóti

Róbert Harðarson og Guðmundur KjartanssonÍ gær fór fram þriðja umferð Kaupþingsmóts Hellis og TR.  Fljótt sömdu þeir um skiptan hlut ofurbloggarinn Snorri G. Bergsson og Sigurður Daði Sigfússon, sigurvegari KB banka mótsins í fyrra (en mótið hefur skipt um nafn eins og bankinn!) en í öðrum skákum var berist lengur.  Baltarnir tveir Miezis og Kveynis leiða í stórmeistaraflokki en Englendingurinn Bellin í meistaraflokki.

Reyndar virðist stórmeistaraflokkurinn ætlast að þróast sérkennilega.  Tveir keppendur með fullt hús en svo er helmingur keppenda í 3.-7. sæti með 1,5 vinning!  Ólíklegt er að stórmeistaraáfangi náist úr þessu en til þess þarf 7 vinninga og því 4,5 vinning í síðustu fimm skákunum.

Róbert og Guðmundur hafa þó möguleika á áfanga að alþjóðlegum meistaratitli en til þess þarf 5 vinninga.  

Ingvar Þór JóhannessonÍ meistaraflokki vann Bellin Heimi Ásgeirsson en öðrum skákum lauk með jafntefli.   Ingvar Þór Jóhannesson er annar með 2,5 vinning og hefur teflt geysivel, sigraði m.a. skoska stórmeistarann Colin McNab í annarri umferð.  Sigurður Daði og Snorri hafa 2 vinninga.  Í meistaraflokki þarf 6,5 vinning til að ná áfanga og því hafa þremenningarnir allir enn möguleika gangi þeim vel í lokaátökunum.

Nokkrar skemmtileg atvik hafa gerst.  Einn keppandi fann ekki "happapennann" í fyrstu umferð, sem merktur var Kaupþingi (eða KB banka).  Í ljós kom að penninn var kominn í hendur bankastjórans, sem tók hann til að skrifa undir samninginn við Hjörvar!  Bankastjórinn skilaði pennanum og keppandinn tók gleði sína á ný!

Svo verð ég birta samtal milli tveggja skoskra skákmanna sem átti sér stað eftir fyrstu umferð.  McNab var þá nýbúinn að gera jafntefli við Hjörvar Stein, þar hann hafði tapað tafl um tíma, en Shaw tapaði fyrir honum í fyrra.  

Samtalið var talað með ekta skoskum hreim eins og maður heyrir í Taggart-þáttunum:

Shaw: "How did you do?"
McNab: "I  drew"
Shaw: "Bloody hell, fantastic job"

Eftir fyrstu umferð talaði ég nokkuð við Bellin.  Hann furðaði sig á því hversu illa hefur gengið fyrir Íslendinga að eignast tíunda stórmeistarann (þá undanskiljum við þá sem urðu stórmeistarar áður en þeir gerðu íslenskir ríkisborgarar!)

Bellin taldi að íslensk skákhreyfing ætti að tengja betur gömlu meistaranna við þá ungu.  Athygliverð hugmynd.  Væri gömlu meistarnir tilbúnir að hitta þá yngri nokkrum sinnum á ári og ausa úr viskubrunnum sínum?  Það hefðu allir gott að því, bæði þeir og yngri meistarnir, sem hafa fengið fá tækifæri til að hitta hina eldri nema þá helst á einsdagshraðskákmótum.

Jæja, fjórða umferð hefst kl. 10 í skákhöllinni Faxafeni.  Þá mætast í stórmeistaraflokki m.a. Guðmundur-Kveynis og Miezis-Stefán.  Við vonum að íslensku meistarnir nái að leggja stein í götu Baltanna svo þeir stingi ekki allt of mikið af!

Í  meistaraflokki mætast m.a. Sigurður Daði-Bellin og Sigurbjörn-Ingvar Þór.

Hvet skákáhugamenn til að fjölmenna á skákstað.  Ekkert annað þarfara að gera á svo "löngum" degi!


Ingvar byrjar vel á Kaupþingsmótinu!

Ingvar ÞórFIDE-meistarinn Ingvar Þór Jóhannesson sigraði skoska doktorinn og stórmeistarann Colin McNab í 2. umferð Kaupþingsmóts Hellis og TR sem fram fór í morgun og leiðir nú í meistaraflokki ásamt Robert Bellin.  McNab hefur ekki byrjað vel og hefur aðeins hálfan vinning, þrátt fyrir að vera stigahæstur.   

Eystrasaltsstórmeistarnir Miezis og Kveynis eru efstir í stórmeistaraflokki.  Guðmundur Kjartansson hefur byrjað vel og gert jafntefli við tvo af sterkari keppendunum í flokknum.  

Í meistaraflokki er Ingvar efstur eins og áður sagði. Í 2.-3. sæti eru Sigurður Daði Sigfússon, sem sigraði á mótinu í fyrra, og ofurbloggarinn Snorri Guðjón Bergsson.

Þriðja umferð hefst kl. 17.  Rétt er að hvetja skákáhugamenn til koma á staðinn.   Góð stemming, boðið upp á kaffi, og pöbb í sama húsi vilja menn létta sér lund með einum léttum! Wink


mbl.is Ingvar Þór Jóhannesson sigraði skoska stórmeistarann Colin McNab
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn lækkar VG um hálft prósent á dag!

SteingrímurÍ síðustu viku birti ég blogg sem heitir VG lækkar um hálft prósent á dag.  Enn heldur sama þróun áfram og aðra vikuna í röðuna lækkar fylgi flokksins um hálft prósent á dag og hefur nú lækkað um 7% á tveimur vikum.

Þrátt fyrir það geta VG-ingar vel við unað að hafa 21% en í síðustu kosningum var fylgið 9% en þróunin hlýtur að vera ákhyggjuefni fyrir Steingrím Joð og félaga.

Spá mín um lokaúrslitin frá í síðustu viku stendur óbreytt:

  • A:   2%
  • B: 13%
  • D: 35%
  • F:   4%
  • Í:    6%
  • S: 25%
  • V: 15%

 


mbl.is Sjálfstæðisflokkur með rúm 40% og VG með 21%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært framtak Kaupþings!

hjorvar1Tímamótasamningur var gerður í dag fyrir íslenska skákhreyfingu. Í fyrsta skipti í íslenskri skáksögu gerir íslenskt fyrirtæki, nánar tiltekið Kaupþing, samstarfssamning við íslenska skákmeistara þ.e. við Hjörvar Stein Grétarsson og Taflfélagið Helilir sem gerir félaginu mögulegt að stórauka þjálfun Hjörvars og þátttöku hans í skákmótum hérlendis sem og erlendis.   Í kvöld hófst svo Kaupþingsmótið í skák og gerði m.a.Hjörvar jafntefli við skoska stórmeistarann Colin McNab.   

Það er von samningsaðila að samningur þessi geri leið Hjörvars enn greiðari að æðri metorðum skáklistarinnar. Hjörvar hefur náð eftirtektarverðum árangri á síðustu árum þrátt fyrir ungan aldur. Hann er margfaldur Íslands- og norðurlandameistari og sá yngsti í íslenskri skáksögu sem teflt hefur í landsliðsflokki Skákþings Íslands.

Bankinn er aðalstyrktaraðili Kaupþingsmótsins í skák sem hófst í dag í skákhöllinni í Faxafeni 12.   Mótið er samstarfsverkefni Hellis og TR.  Þetta er í annað skipti sem mótið fer fram.  Í fyrra var mótið 10 manna mót og þá eingöngu haldið af Hellismönnum.   Ákveðið var að feta í fótskör íslenskra bankamanna og  tvöfalda mótið af stærð á milli ára!  Nú er teflt í tveimur flokkum, stórmeistaraflokki og meistaraflokki og hefur keppendafjöldi því tvöfaldast.   

Stórmeistarinn McNab, sem er stighæstur keppenda í meistaraflokki og doktor í stærðfræði, mátti þakka fyrir jafntefli gegn Hjörvari, sem er stigalægstur keppenda.  Til gamans má geta að McNab tefldi á fyrsta alþjóðlega móti Hellis í október 1993 en þá var Hjörvar enn í vöggu! 

McNab er annar keppenda, sem einnig tóku þátt í alþjóðlega mótinu 1993, en hinn er ofurbloggarinn Snorri G. Bergsson.

John Shaw og Björn ÞorfinnssonMeðal annarra úrslita má nefna að í stórmeistaraflokki mátti hinn skoski stórmeistarinn John Shaw teljast heppinn að ná jafntefli við Björn Þorfinnsson, sem er helsti hvatamaður þessa móts og reyndar starfsmaður Kaupþings!  Bróðir Björns, Bragi, sigraði Jón Viktor Gunnarsson.

Í meistaraflokki má nefna sigur Ingvars Þór Jóhannessonar á  Kazimierz Olszynski, sem er eitursterkur Pólverji, sem er vinnur hérlendis þessi misseri.  

Önnur úrslit má finna á Skák.is og á heimasíðu mótsins, þar sem finna má öll úrslit og einnig fjölda mynda!

Tvær umferðir verða tefldar í dag, skírdag.  Klukkan 10 hefst önnur umferð og klukkan 17 hefst þriðja umferð.  Mótshaldarar hvetja skákáhugamenn til að mæta á skákstað!

 

 


mbl.is Ungur skákmaður styrktur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaupþingsmótið að hefjast

Kaupþingsmótið í skák fer fram um páskana nánar tiltekið 4.-9. apríl.  Mikið stress hefur verið á okkur sem að mótinu standa síðustu daga enda mörg atriði sem þarf að passa upp á. Í dag vorum við t.d. stressaðir að sumir keppendur hefðu ekki skilað sér en sem betur var það misskilingur!  

Í kvöld fór fram töfludráttur og ljóst hverjir mætast í fyrstu umferð.

Rétt er þakka Kaupþingi fyrir stuðning bankans við mótið og þá sérstaklega útibúi bankans í Mjódd og Fannari útibússtjóra sem hefur reynst ómetanlegur stuðningsmaður.  

Ekki kæmi það mér á óvart þótt bankinn ætti enn eftir að auka stuðning sinn við skáklistina á öflugan hátt enda hefur bankinn og fyrirrennerar hans verið þekktir fyrir myndarlegan stuðning við skákina í áranna rás.   

Hægt verður að fylgjast með úrslitum á heimasíðu mótsins og á Skák.is.  

Auk þess verður reglulegar fluttar fréttir af gangi mála á bloggsíðu minni um alla páskahelgina.

Fylgist með!


Ætla ekki að fjalla um sigurinn gegn Arsenal

LiverpoolÞar sem vil ekki alls ekki salta í sár Arsenal-aðdáenda ætla ég að sleppa því að minnast á stórsigur Liverpool á Arsenal sem vannst 4-1.

Ég ætla líka að sleppa því að minnast á það að Arsenal er fallið úr öllum keppnum.  Sigrarnir á Liverpool reyndust til lítils í bikarkeppnunum.  

Svo ætla ég líka að sleppa því að minnast á góða frammistöðu Crouch sem margir hafa verið duglegir að rakka niður.
mbl.is Crouch með þrennu í 4:1 sigri Liverpool á Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnar meiddist á hæl í fótbolta

Gunnar Björnsson, bankastarfsmaður, meiddist á hæl í þegar hann var að spila fótbolta í Fífunni í Kópavogi í gær.  Er bankastarfsmaðurinn marinn en samkvæmt upplýsingum úr Landsbankanum er líðan hans eftir atvikum góð. 

Það var hinn fimi fótboltamaður Lárus Knútsson, sem tæklaði Gunnar með þessum afleiðingum.  Að sögn viðstaddra datt Gunnar með tilþrifum og rak upp ákaflega eymdarleg óp í fallinu.


mbl.is Dorrit lærbrotnaði í skíðaslysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylgi VG lækkar um hálft prósent á dag!

Vinstri grænirÞar kom að því.  Loks er fylgi VG farið að minnka en fylgið minnkar um heil 4% á milli vikna sem verður að teljast býsna mikið á svo stuttum tíma eða um hálft prósent á dag!   Þeir þurfa þó ekki kvarta með 24% en fylgið á án efa eftir enn að minnka og verður væntanlega í kringum 15% í komandi kosningum. 

Litlu flokkarnir rétt slefa báðir rétt yfir 5%.  Ég spái því að annar þeirra dettur niður fyrir mörkin og þá er það finnst líklegra að það verði Frjálslyndir.  Frambjóðendur þeirra eru einfaldlega ekki nógu spennandi á meðan Íslandshreyfingin hefur heldur áheyrilegra fólk í framboði auk þess sem umhverfismál höfða meira til landans heldur en innflytjendamál.  

Fylgi Samfylkingar og Framsókn á hins vegar eftir að aukast.

Læt svo spá um fylgi flokkanna fylgja:

A:   2%
B: 13%
D: 35%
F:   4%
Í:    6%
S: 25%
V: 15%


mbl.is Íslandshreyfingin mælist með með 5,2% fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband