24.4.2007 | 08:45
Dökkhærði kallinn í forsætisráðuneytinu
Hér á blogginu hafi menn verið að fara af límingunum vegna ummæla Jóns Baldvins um ljóskuna í menntamálaráðuneytinu.
En hvað er það sem gerir þessi ummæli skolhærða kallsins með yfirvaraskeggið svona alvarleg? Hvað ætli dökkhærða kallinum í forsætisráðuneytinu finnist um þau? Eða ljóskunni í formannsstóli Samfylkingar? Eða hinum rauðbirkna sköllótta formanni Vinstri grænna? Eða silfurskottunni og fyrrum formanni Þjóðvaka? Eða hinum broddaklippta formanni Framsóknar? Eða gráhærða kallinum í Seðlabankanum?
Breytir háralitur kvenfólks einhverju? Verða þær hvort sem er ekki óléttar? Og gera þær ekki allar sama gagn?
Kveðja frá skolhærðum bankastarfsmanni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.4.2007 | 18:25
Mikið fylgi VG styrkir Sjálfstæðisflokkinn!

Með auknum styrk VG hefur sjálfstraust þeirra sem langlengst eru til vinstri aukist og nú heyrir maður sjónarmið, sem einhvern tíma hefðu þótt algjört tabú, en þú þykja eðlileg úr ranni vinstrimanna.
Fólk, sem óttast um sig hag, komist VG til að valda, og að öllu venjulega myndu kjósa Samfylkingu og Framsóknarflokk eru því í umvörpun að fylgja sér á bak Geir H. Haarde og félaga í Sjálfstæðisflokknum til að forðast vinstri stjórn undir forystu Steingríms, með Ögmund jafnvel sem viðskipta- eða fjármálaráðherra.
Það er því ekki skrýtið að Geir kjósi að nefna Steingrím í ræðu sinni en minnast ekki á Samfylkinguna því Sjálfstæðismenn hafa uppgötvað þessa staðreynd. Það er þeirra hagur að hagur VG aukist því þá mun miðjufylgið streyma til Sjálfstæðisflokksins. Framboð Ómars styrkir einnig stöðu Sjálfstæðisflokkins, því þótt Ómar og Margrét segi Íslandshreyfinguna vera hægri flokk fær hreyfinginn vinstri stimpilinn og glundroðinn eyks á vinstri kantinum og Sjálfstæðisflokkurinn fitnar eins og púkinn á fjósbitanum. Tilgangur Ómars hefur gjörsamlega mistekist og verður framboð hans mjög líklega til þess að stóriðjuflokkarnir haldi völdum.
En hvað er til ráða fyrir þá sem vilja ekki áfram sömu stjórn? Jú væntanlega er besti kosturinn að kjósa Samfylkinguna, og styrkja stöðu hennar á kostnað VG.
![]() |
Geir: Fer fram á endurnýjað umboð til að stýra næstu ríkisstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.4.2007 kl. 08:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.4.2007 | 09:08
Góð byrjun hjá íslensku keppendunum!
Mjög góð byrjun hjá íslensku keppendunum og Ingvar virðist funheitur og til alls líklegur.
Auk þess var Róbert afar óheppinn að tapa fyrir Miezis, sigurvegara Kaupþingsmótsins.
Önnur umferð byrjar kl. 17. Skora á skákáhugamenn að fjölmenna!
![]() |
Ingvar Þór sigraði stórmeistara í fyrstu umferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Skák | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2007 | 20:31
Skemmtilegu Kaupþingsmóti lokið

Tilgangur Kaupþingsmóts Hellis og TR var að gefa mönnum tækifæri á að krækja sér í áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Það tókst nú rétt eins og í fyrra þegar Sigurður Daði Sigfússon krækti sér í áfanga en nú var það Ingvar Þór Jóhannesson sem náði áfanga. Ingvar er ekki alveg ótengdur styrktaðilanum en faðir hans hefur verið starfsmaður Kaupþings og fyrirrennara hans um langt árabil!
Frammistaða, hins 13 ára gamla, Hjörvars Steins, var athyglisverð en hann fékk 50% vinningshlutfall, þrátt fyrir að vera stigalægstur keppenda, og var jafn skoska stórmeistaranum Colin McNab.
Fjöllum lauslega um mótin. Byrjum á stórmeistaraflokki en þar var lokastaðan sem hér segir:
1. SM Normunds Miezis, Lettlandi, 7,5 v. af 9
2. SM Aloyzas Kveynis, Litháen, 6,5 v.
3. AM Emil Hermansson, Svíþjóð, 5,5 v.
4.-6. AM Stefán Kristjánsson, AM Bragi Þorfinnsson og SM John Shaw, Skotlandi, 4,5 v.
7. FM Róbert Harðarson 4 v.
8.-9. Guðmundur Kjartansson og AM Jón Viktor Gunnarsson 3,5 v.
10. FM Björn Þorfinnsson 1,5 v.
Miezis vann fremur öruggan sigur og hækkar um heil 17 stig fyrir frammistöðu sína. Sigur hans var aldrei í hættu. Íslensku alþjóðlegu meistararnir hefði mátt ganga betur. Bragi hækkar þó á stigum en Stefán og Jón Viktor lækka.
Frammistaða Róbert og Guðmundar var góð og hækka báðir töluvert. Sá fyrrnefndi byrjaði vel en gekk ekki vel í lokin. Björn Þorfinnsson átti hræðilegt mót en hann var einn skipuleggjanda mótsins og e.t.v. er það ekki góð latína að biðja skipuleggja mót og taka þátt í þeim.
Lokastaðan í meistaraflokki var:
1. AM Robert Bellin, Englandi, 7,5 v. af 9
2. FM Ingvar Þór Jóhannesson 6,5 v.
3. AM Charles Lamoureux, Frakklandi, 5,5 v.
4. FM Snorri G. Bergsson 5 v.
5.-7 Hjörvar Steinn Grétarsson, FM Sigurður Daði Sigfússon og SM Colin McNab, Skotlandi, 4,5 v.
8. FM Sigurbjörn Björnsson 4 v.
9. Heimir Ásgeirsson 2,5 v.
10. Kazimierz Olszynski, Póllandi 0,5 v.
Robert Bellin vann öruggan sigur í flokknum og virtist í fantaformi. Bellin er af sömu kynslóð og Miles, Nunn og Speelman og er þrautþjálfaður skákmaður sem m.a. hefur sigrað á nokkrum sterkum skákmótum.
Um árangur Ingvars þarf ekki að ræða frekar. Hann var frábær og fátt gleður mótshaldara en þegar áfangar koma í hús. Ingvar byrjaði með látum, hafði 4,5 vinning eftir 5 umferðir en gerði jafntefli í lokaumferðunum fjórum. Hann hækkar um heil 30 stig!
Snorri tefli einnig vel og var um tíma í áfangasénum en tap gegn Hjörvari í 7. umferð gerði út um vonir hans. Hann hækkar um níu stig.
Sigurður Daði og Sigubjörn geta báðir betur og ætluðu sér án efa meira. Heimir getur þokkalega vel við unað en fyrirfram gat hann búist við erfiðu móti.
Árangur Hjörvars var afar góður og sannaði að hann ætti fullt erindi á slíkt alþjóðlegt skákmót. Í fyrra nýtti tækifærið vel og enn betur nú. Kaupþing hefur ákveðið að styðja og styrkja Hjörvar til að vera enn betri skákmann. Þess má geta að Hjörvars fermdist í dag!
Kazimierz mætti ekki í 3 síðustu umferðirnar. Engar skýringar gaf hann og ekki náðist í hann í síma, SMS eða tölvupósti. Afar slæmt þegar skákmenn hætta í mótum og sérstaklega þegar það er gert án allra skýringa.
Lokastaðan í kvennaflokki:
1.-2. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Izabelle Lamoureux 2,5 v.
3. Elsa María Þorfinnsdóttir 1 v.
4. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir 0 v.
Mótshaldarar ákváðu með stuttum fyrirvara að bæta við kvennaflokki þar sem kona eins keppendans í meistaraflokki tók þátt og vitað var að hún væri skákkona. Hún var til í lítið og stutt mót!
Izabelle sigraði á mótinu ásamt Hallgerði Helgu sem sýndi að árangur hennar á Íslandsmóti kvenna var alls engin tilviljun en þar hafnaði hún í 3. sæti.
Elsa og Jóhanna höfnuðu í 3. og 4. sæti og eru ásamt Hallgerði Helgu og líka Sigríði Björg Helgadóttur líklegar til að skipa ólympíulið landans á næstu árum. Vonandi verður hægt að halda kvennaflokk samhliða á komandi árum.
Kaupþingi þakka mótshaldarar stuðninginn og þá sérstaklega útibúinu í Mjódd. Skáksambandið fær einnig þakkir fyrir sinn stuðning.
Keppendur fá þakkir fyrir skemmtilegt mót!
Sjáumst á næsta ári!
Skák | Breytt 11.4.2007 kl. 09:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.4.2007 | 14:14
Til hamingju Ingvar...........glæsilegt!
![]() |
Náði áfanga að alþjóðlegum meistaratitli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Skák | Breytt s.d. kl. 19:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.4.2007 | 00:11
Þokkalegur..........
Ingvar náði áfanga á Ístaksmóti Hróksins fyrir nokkrum árum síðan. Nái Ingvar jafntefli gegn ofurbloggaranum Snorra G. Bergssyni í lokaumferð Kaupþingsmóts Hellis og TR nær hann sínum öðrum áfanga að alþjóðlegum meistaratitli.
Lokaumferðin hefst kl. 12 en teflt er í skákhöllinni, Faxafeni 12. Boðið er upp á kaffi og með því!
Ég mun svo fjalla meira um mótið annað kvöld!
![]() |
Ingvar Þór vantar hálfan vinning í titiláfanga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Skák | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.4.2007 | 15:48
Kaupþingsmótið í skák: Ingvar í góðum málum
Ingvar Þór Jóhannesson gerði örjafntefli við Bellin í sjöunda umferð Kaupþingsmótsins, sem fram fór fyrr í dag. Með því nálgast Ingvar enn sinn annan áfanga að alþjóðlegum meistaratitli en hann þarf einn vinning í lokaumferðunum tveimur.
Þrír aðrir skákmenn hafa möguleika á áfanga. Róbert og Guðmundur á áfanga að alþjóðlegum meistaratitli og Svíinn Emil Hermansson að stórmeistaraáfanga. Þremenningarnir þurfa allir að vinna báðar skákirnar.
Hinn ungi og efnilegi skákmaður Hjörvar Steinn Grétarsson sigraði Snorra G. Bergsson, sem var hinn vígalegasti með týrólahatt, og er nú kominn með 3 vinninga en Hjörvar mætir einmitt Ingvari í áttundu og næstsíðustu umferð, sem hefst kl. 17.
Hvet skákáhugamenn til að fjölmenna í skákhöllina, Faxafeni 12!
Skák | Breytt s.d. kl. 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2007 | 22:28
Konur tefla á Kaupþingsmóti
Kaupþingsmótið Hellis og TR hélt áfram í dag og í dag hófst kvennaflokkur mótsins. Ingvar Þór er annar í meistarfaflokki eftir örjafntefli við Sigurðu Daða. Snorri er þriðji eftir sigur á Frakkanum Lamouroux þar sem Snorri beitti "rakbragðinu" sem Frakkinn hafði enginn svör við. Blóðug skák! Erlendir meistarar eru í þremur efstu sætunum í stórmeistaraflokki. Elsa María er efst í kvennaflokki.
Annars kom hugmyndin með kvennaflokkinn upp með skömmum fyrirvara. Þannig var mál með vexti að kona franska skákmannins Charles Lamouroux, Izabelle, kom með honum til landisns. Hún er prýðisgóð skákkona og var tilbúin, aðspurð, í stutt skákmót við þrjár ungar og efnilegar íslenskur skákkonur.
Ingvar stendur best að vígi að þeim sem möguleika á áfanga að meistaratitli. Hann þarf 1,5 vinning í lokaumferðunum þremur en Snorri þarf 2,5 vinning.
Guðmundur þarf 2 vinninga og Róbert 2,5 vinning en þeir tefla í stórmeistaraflokki og eiga því eftir að mæta erfiðari andstæðingum en Ingvar og Snorri. Auk þess hefur Svínn Emil Hermansson möguleika á stórmeistaraáfanga vinni hann allar 3 skákirnar sem eftir eru.
Sjöunda umferð fer fram á morgun og hefst kl. 10. Teflt er í skákhöllinni Faxafeni 12.
Nánari upplýsingar má nálgast á Skák.is og heimasíðu mótsins.
Skák | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.4.2007 | 22:44
Gott gengi á Kaupþingi
Frammistaða tveggja íslenskra skákmanna hefur vakið athygli á Kaupþingsmótinu, sem fram fer um páska. Guðmundur Kjartansson er í 3.-4. sæti í stórmeistaraflokki og Ingvar Þór Jóhannesson er í 1.-2. sæti í meistaraflokki. Báðir hafa þeir prýðismöguleika á að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli.
Gummi hefur 3 vinninga í 5 skákum en í stórmeistaraflokki þarf 5 vinninga til að ná áfanga. Ingvar hefur 4,5 vinning en í meistaraflokki þarf 6,5 vinning. Þeir þurfa því 2 vinninga í lokaumferðunum fjórum. Hvorugur hefur tapað skák. Ekkert er þó gefið í þeim efnum en vonandi að þeir haldi áfram sínu striki.
Hinn 13 ára, Hjörvar Steinn Grétarsson, hefur ekkert gefið þeim eldri eftir og hefur 2 vinninga þrátt fyrir að vera stigalægstur keppenda og hefur teflt vel. Gerði í kvöld jafntefli við sigurvegarann frá í fyrra, Sigurð Daða Sigfússon.
Skotunum hefur ekki gengið vel. Shaw tapaði í dag og hefur enn ekki unnið skák, hafði gert jafntefli í öllum skákunum til þessa. McNab vann loks og er kominn með helmingsvinningshlutfall í meistaraflokki.
Sjöta umferð fer fram á morgun, laugardag, kl. 17. Ég vil hvetja skákáhugamenn til að fjölmenna á skákstað. Boðið er upp á kaffi og með því!
Skák | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)