6.7.2007 | 14:44
Gaman á N1-móti
Það er búið að vera gaman hjá okkur Þrótturunum á N1-mótinu. Liðinu hans Gunnars Vals hefur gengið vel og hefur unnið 5 leiki og þar af frækinn sigur á FH-ingum, sem höfðu unnið alla sína leik. Það voru loks Völsungar sem náðu sigra og fór þar mikinn markvörður þeirra. Í gær fór svo rigna en í dag er þetta fína veður. Í gær fór svo liðið í bíó og þar vantaði ekki "Hrútalyktina". Illa sveitt bíó!
Í gær var einnig var í sund og þar upplifði ég sundverði svo voru gjörsamlega að fara yfirum af öllum brjálæðingunum og hundskömmuðu strákana (væri gaman að sjá Jón Viktor taka svona syrpu)! Loka þurfti rennibrautinni tvisvar og að lokum þurfti að reka liðið upp úr þar sem hreinsikerfið hafði ekki undan!
Jæja, mínir menn komnir í átta liða úrslit þar sem þeir mæta Stjörnunni líkast til um 17:30. Verður erfiður leikur. Næ sennilega ekki að blogga meira fyrr en sunnudag þar sem bókasafnið á Akureyri er ekki opið um helgar og netkaffið á mótsstað fullt af krökkum í tölvuleikjum!
Minni á myndaalbúm sem finna má efst til vinstri.
Heimasíða mótsins er: http://www.ka-sport.is/n1motid/
Lifi Þróttur!
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.7.2007 | 13:00
Fjör á N1-móti á Akureyri
Í gær valdið til Akureyrar á N1-mót fyrir fimmta flokk. Guttinn minn, hann Gunnar Valur, spilar þar með Þrótti. Hans liði hefur aldeilis byrjað vel en í gær vannst 5-0 sigur á Val og í dag vannst 5-1 á ÍA. Gunnar Valur hefur sett tvö í báðum völlum.
Þetta flotta veður er komið á Akureyri og hér væsir ekki um menn. Tveir leikir framundan í dag og bíóferð á milli!
Læt þetta duga í bili en minni á myndir af leiknum gegn Skagamönnum má finna á undir myndaalbúm. Ég reyndi svo að uppfæra öðru hverju og birta fleiri myndir.
Lifi Þróttur!
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 13:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.6.2007 | 23:06
Hvað, er Eggert alls staðar?
![]() |
Eggert reyndi að fá Djibril Cissé til West Ham |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2007 | 12:09
Maður með reynslu ráðinn hjá Jóhönnu!
Það er gott mál hjá henni Jóhönnu að ráða hann Hrannar Björn í starf aðstoðarmanns ráðherra. Við sem höfum unnið í skákhreyfingunni með Hrannari þekkjum hann að góðu einu en þar vann gott starf. Mér finnst nokkuð sérstakt að sjá menn pota í Hrannar og kalla hann "fjárglæframann". Hrannar lenti jú í fjárhagserfiðleikum, sem Sjálfstæðismenn fyrir borgarstjórnarkosningarnar 1998 sáu til þess að færi ekki framhjá neinum, en Hrannar hefur náð sér upp úr því með dugnaði og elju.
Auk þess held að það sé bara hið besta mál að með Jóhönnu í velferðarráðuneytinu starfi maður sem þekki líka hvernig er að að lenda í fjárhagserfiðleikum.
Ég fagna því þessari ráðningu og óska Hrannari velfarnaðar á nýjum vettvangi!
![]() |
Hrannar Björn aðstoðarmaður Jóhönnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.6.2007 | 23:14
Hvað eiga pólskur innflytjandi, spænskur bankastarfsmaður og egypskur kennari sameiginlegt?
Á morgun, miðvikudaginn 20.júní ,kl. 17.00, hefst Fiskmarkaðsmót Taflfélagsins Hellis í húsakynnum Skáksambands Íslands, Faxafeni 12. Mótið er sérstaklega skemmtilegt fyrir þær sakir að áhrif alþjóðavæðingar íslensks samfélags eru afar greinileg á keppendalistanum!
Lög FIDE, alþjóðlega Skáksambandsins, kveða á um það að til þess að mót geti talist alþjóðlegt mót og þannig gefið möguleika á áföngum að alþjóðlegum titlum þá verður 1/3 keppenda að vera af erlendu bergi brotnir. Að þessu sinni vill svo skemmtilega til að þrír "útlendinganna", Pólverjinn Andrzej Misiuga, Spánverjinn Jorge Fonseca og Egyptinn Omar Salama eru allir búsettir hér á landi og er slíkt algjört einsdæmi í alþjóðlegu skákmótahaldi hérlendis. Eini aðkomumaðurinn er egypski alþjóðlegi meistarinn Sarwat Walaa en hann er jafnframt stigahæsti skákmaður mótsins.
Fyrir heimavarnarliðinu, sem reyndar hefur aldrei verið jafn erfitt að skilgreina, fara ungi alþjóðlegi meistarinn Bragi Þorfinnsson og hinn þaulreyndi alþjóðlegi meistari Sævar Bjarnason sem er sá Íslendingur sem hefur teflt langflestar kappskákir. Sævar hefur á sínum ferli sigrað alla íslensku stórmeistaranna en ánægjan af því að bæta í höfðuðleðrasafnið fer, að því er virðist, aðeins vaxandi. Augu margra skákáhugamanna munu beinast að hinum 15 ára gamla Hjörvari Steini Grétarssyni en hann náði nýverið frábærum árangri á alþjóðlegu skákmóti í Ungverjalandi og mun án efa freista þess að halda þeirri velgengni áfram. Aðrir keppendur eru FIDE-meistararnir Ingvar Þór Jóhannesson, Björn Þorfinnsson (bróðir Braga) og kvennastórmeistarinn Lenka Ptacknikova. Ingvar og Björn hafa báðir náð tveimur áföngum að alþjóðlegum meistaratitli og má vænta þess að þeir leggi allt í sölurnar til að klófesta þriðja og síðasta áfangann á þessu móti. Lenka er langsterkasta skákkona landsins en hún er auk þess eiginkona Omars Salama sem einnig tekur þátt í mótinu. Það verður því boðið upp á bræðra- og hjónavíg að Faxafeni 12 næstu daga.
Fyrsta umferð hefst kl. 17.00 að Faxafeni 12 og munu eftirtaldir skákmenn mætast:
Hjörvar Steinn Grétarsson - Björn Þorfinnsson
Omar Salama - Andrzej Misiuga
Lenka Ptacknikova - Jose Fonseca
IM Bragi Þorfinnsson - IM Sævar Bjarnason
Ingvar Þór Jóhannesson - IM Sarwat Walaa
Keppendalistinn:
Nr. | Titill | Nafn | Land | Stig | Félag |
1 | AM | Sarwat Walaa | EGY | 2397 | |
2 | AM | Bragi Þorfinnsson | ISL | 2384 | Hellir |
3 | FM | Björn Þorfinnsson | ISL | 2348 | Hellir |
4 | FM | Ingvar Þór Jóhannesson | ISL | 2299 | Hellir |
5 | KSM | Lenka Ptácníková | ISL | 2290 | Hellir |
6 | AM | Sævar Bjarnason | ISL | 2262 | TV |
7 | Omar Salama | EGY | 2194 | Hellir | |
8 | Hjörvar Steinn Grétarsson | ISL | 2156 | Hellir | |
9 | Andrzej Misiuga | POL | 2153 | TR | |
10 | Jorge Fonseca | ESP | 2085 |
Skákmótinu verður framhaldið kl. 17.00 næstu vikuna og er aðgangur ókeypis í boði Fiskmarkaðs Íslands.
6.6.2007 | 21:42
Hefur 365 sama PR-ráðgjafa og Kristinn Björnsson?
Er von að maður spyrji? Margir muna eftir furðulegu viðtali Kristins í Kastljósi sem gerði honum mun verra en ef hann hefði kosið að sitja heim. Nú hefur Ari Edwald og 365 kosið að hefja stríð gegn Agli sem öllum nema þeim er ljóst að þeir geta ekki unnið og ímynd þeirra mun skaðast og hefur þegar skaðast umtalsvert.
Eftir fjölmiðlamálið hafa margir haft vissa samúð með 365 en furðuleg framkoma þeirra gegn Agli hefur að miklu leyti eytt þeirri innistöðu. Fyrst er því haldið fram að samningur hafi komist á, svipaður hinum fyrri, og þegar Egill segir hinum meinta samningi upp, í samræmi við ákvæði í eldri samningi, þá gildir ekki uppsagnarákvæðið því samningurinn er tímabundinn! Vá!
Svo er það skelfilega vanhugsað hjá Ara að virða ekki launaleynd gagnvart "fyrrverandi" starfsmanni sínum. Mun nú vera gefið upp hvað Logi hefur í laun? Svanhildur? Denni? Fleiri milljónatugasamningar?
Er ekki enginn góður almennatengill á 365 sem getur stöðvað þessi gönuhlaup þeirra sem þar stjórna?
![]() |
Ari Edwald svarar Agli Helgasyni í bloggheimum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.6.2007 | 19:10
Furðuleg hegðun 365
Ég er gáttaður á hegðun 365. Augljóst er að Egill vill vinna annars staðar og það hlýtur að vera öllum ljóst að það þjónar ekki neinum tilgangi að þvinga menn til þess að vinna á vinnustað ef þeir það ekki vilja og gerir meira ógagn en gagn.
Ég skora því á 365 að láta málið niður fjalla áður fyrirtækið hlýtur meiri ímyndunarskaða en nú þegar.
![]() |
365 miðlar hóta Agli lögbanni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.5.2007 | 00:40
Var Geir svekktur?
Mér fannst nokkuð athyglisvert að horfa á aukafréttatímanna, sem ég gerði rétt áðan á netinu þar sem ég var upptekinn í kvöld. Þar hafði ég á tilfinningunni eins og Geir væri ekki alveg sáttur. Kannski hann hafi viljað gera meiri breytingar en ekki séð sér fært? Kemur eflaust mörgum á óvart að Björn skuli taka sæti í "Baugsstjórninni" en að mínu mati hefði verið rétt að hleypa Bjarna frænda hans að.
Ég hefði kosið að Sjálfstæðisflokkur hefði gert meiri breytingar og hleypt yngra liði inn en aðeins einum ráðherra var skipt út en ég átti von á 2-3 breytingum á þeim bænum.
Í Samfylkingunni kemur nokkuð á óvart að Ágúst Ólafur yrði ráðherra en að öðru leyti kemur þar fátt á óvart. Mér finnst Ágúst taka þessum tíðindum vel þótt hann væri ekki fullsáttur. Hans tími mun án efa koma en þar er framtíðarleiðtogi þar á ferð. Tími Jóhönnu er hins vegar kominn og er það vel!
![]() |
Þrjár konur og þrír karlar ráðherrar fyrir Samfylkingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.5.2007 | 09:09
Að gefnu tilefni: Ég er ekki að hætta að blogga
Vegna fjöld fyrispurna, er rétt að það komi fram að ég er ekki með bloggleiða, og ég er ekki að fara að skrifa á nýja DV-vefinnn, ég hef ekki verið kærður fyrir skrif mín og er því ekki að hætta vegna þess. Reyndar finnst mér bara ágætt að blogga og satt best að segja er ég ekkert á leiðinni að hætta.
Mér finnst bara rétt að koma þessu á framfæri við aðdáendur mína.
Virðingarfyllst,
Gunnar Björnsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)