11.8.2007 | 20:18
Enn af Spáni
Í gær hélt fjölskyldan áfram að hafa það gott. Farið var á ítalskan veitingastað og hlustað á hina heimsfrægu Patti Ross sem söng lifandi músík á meðan borðað var.
Í dag var haldið áfram að lifa hinu ljúffenga lífi. Legið við laugina, Uno spilað, lesið og blak spilað í lauginni. Að þessu sinni var borðað heima. Ída grillaði ljúffengt nautakjöt og Björn bauð upp á frábæran eftirrétt!
Við strákarnir horfum svo á fótbolta ekki og skemmdi það fyrir að sjá Steven Gerrard skora eitt af mörkum tímabilsins!
Planið á morgun er að gera lítið. Spila í mesta lagi mini-golf en á mánudag á að kíkja á ströndina eða jafnvel djúsí vatnsrennibrautir.
Minnum svo á að myndir frá ferðinni má finna undir "myndaalbúm" ofarlega til vinstri. Þar má t.d. sjá myndir af "heilsu"eftirréttnum sem Björn bauð upp á!
Biðjum að heilsa heim!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.8.2007 | 17:46
Á Spáni er hægt að djamma og djúsa!
Í gær kom fjölskyldan til Alicante. Smá seinkun var á flugi og í fyrsta skipti á ævinni lenti ég því að vera síðasti farþeginn til að innskrá okkur þrátt fyrir að við mættum um 1,5 tíma fyrir flug! Í gær gerðum við lítið annað en að koma okkur fyrir, enda mætt inn í þessa fínu íbúð eftir miðnætti, en í dag fórum við smábíltúr hér um nágrennið og svo lágum við laugina og spiluðum sérstaka útgáfu af sundlaugarblaki!
Nokkrar myndir má finna frá ferðinni undir "myndaalbúm". Við reynum að setja inn smá ferðasögu og myndir reglulega!
Djöfull er þetta þægilegt! Biðjum að heilsa heim í rigninguna!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.7.2007 | 22:12
Mogginn fyrstur með fréttirnar...................not!
Þessi frétt birtist á Skák.is þann 5. júlí sl. eða fyrir rúmum þremur vikum. Það var í raun og veru Sævar Bjarnason sem benti á þetta manna fyrstur eða þann 4. júlí á Skákhorninu.
Kannski þeir Moggamenn ættu að fylgjast betur með Skák.is?Friðrik teflir í Hollandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Skák | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.7.2007 | 19:31
Ísland í dag lækkar bensínverð - Lækkun á enska boltanum næst á dagskrá?
Ísland í dag var með flotta frétt í kvöld en fyrirspurnir þeirra til olíufélaganna leiddi til þess að bensínverð lækkaði í dag og það umtalsvert. Nú legg ég til að umsjónarmenn Íslands í dag leiti sér nær og beiti sér fyrir lækkun á verði á enska boltanum sem hækkar um 88% hjá mörgum áskrifendum.
Eldsneytisverð lækkar töluvert í sjálfsafgreiðslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.7.2007 | 14:29
Enn PR-skandall hjá 365
Verðið hjá Skjásport eftir lækkun skatts var 2.341 kr. Nú kostar sama áskrift 4.390 kr. hjá Sýn2 svo hækkunin er faktíst 88%. Mér og örugglega flestum sem viljum fá enska boltann beint er slétt sama hvort einhver samantektarþáttur birtist fyrr en ella og um það hvort einhverjir æfingarleikir séu sýndir á sumri. Vil svo benda á góð greinarskrif um þessi mál á spjallþræði Liverpool-aðdáenda.
Ég er hugsi yfir framkomu 365 í málinu. Að vanir PR-menn eins og Pétur skuli fara í þann pakka að fara beinlínis með rangt mál og að Steingrímur Sævarr, sem ég hef ávallt borið mikla virðingu fyrir, skuli láta draga sig í þennan drullupoll að gerast málpípa 365 í þessu máli. Af hverju voru t.d. tveir aðilar frá 365 í þættinum í stað þess að fá einhvern utan úr bæ til að ræða við Pétur eða Hilmar?
Nýlega var mjög misheppnað PR-mál hjá 365 þegar þeir reyndu að freista þess að halda Agli Helga hjá sér og koma í veg fyrir að hann færi til RÚV sem gekk svo langt að Ari forstjóri nefndi laun hans í bloggi út í bæ.
Ég hefði haldið að hvergi ættu að vera til fleiri vanir PR-menn en hjá stóru fjölmiðlafyrirtæki til að falla í slíkar gryfjur?
Eða hvað? Þegar stór er spurt............
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.7.2007 | 20:20
Furðulegur málflutningur Sýnarmanna
Rétt áðan var ég að horfa á minn gamla bekkjarfélaga úr Hlíðaskóla, Pétur Pétursson, og Hilmar Björnsson útskýra hækkun á enska boltanum í Íslandi í dag í kvöld. Þeim virtist ekki finnast það mikið tiltökumál að verðskráin sé hækkuð um 70% á mig og fleiri áskrifendur sem höfðu enska boltann.
Einnig var það furðulegur málflutningur að áskriftin hafi í undantekningartilfellum lækkað því það er einfaldlega kolrangt því þegar verðskráin gefur minna viðbótarverð en það sem enski boltinn kostaði á Skjásport er farið fram á bindingu í 12 mánuði á bolta sem fram fer í 10 mánuði, sem meikar auðvitað ekki sens!
Til viðbótar tók 365 sig til nýlega og felldi niður einhliða afslátt á Sýn hjá þeim sem höfðu OG1. Þar er hækkunin svipuð eða um 70%. Sjálfsagt vegna þess að Síminn er ekki lengur í samkeppni.
Sú fullyrðing Péturs að verðskráin væri einföld var skemmtileg en flóknari verðskrá hefur ég sjaldan augum séð. Það er t.d. nokkuð merkilegt að ódýrara er að taka 10 staka mánuði á enska boltanum, sem fer jú aðeins fram í 10 mánuði, heldur en að vera með enska í M12! Munar þar rúmum 6.000 kr. á ári!
Þetta sýnir okkur hversu vont það er þegar einokun er til staðar og hversu nauðsynleg samkeppni er.
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 20:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.7.2007 | 00:34
Þegar ég lenti á Litla Hrauni
Í dag fór á Litla Hraun ásamt Birni Þorfinnssyni, Arnari Valgeirssyni, Emblu Sól, matarstjóra Grænlandsmótsins, Guðfríði Lilju, Hrafni Jökuls og sjálfum viðskiptaráðherranum Björgvin G. Sigurðarsyni og tók þar þátt í skákmóti. Hrókurinn hefur unnið geysigott starf á Hrauninu og hefur mætt þar annan hvern föstudag frá árinu 2004 og slegið upp skákmóti. Skákfélagið á Hrauninu heitir því skemmtilega nafni, Frelsinginn.
Smá beygur var í manni þegar maður gekk inn um hliðið en það var ekki lengi því vel lá á keppendum sem skemmtu sér hið besta og léttur og skemmtilegur andi sveif þarna yfir. Til að koma í veg fyrir að gestirnir hefðum áhrif á úrslitin gilti sú regla að við gestirnir töpuðum alltaf fyrir heimamönnum, burtséð frá úrslitum skákanna. Ég fékk því 2 vinninga í 5 skákum ásamt Birni Þorfinnssyni og Arnari Valgeirssyni hinum Vinalega! Mér tókst að vinna ráðherrann og svo sjálfan Hróksforsetann.
Ljóst er að Hrókurinn hefur gert þarna góða hluti og að skákin er orðinn mikið áhugamál sumra vistmanna. Eðli málsins má ekki geta sigurvegara mótsins og sá sem sigraði tók það sérstaklega fram að það mætti alls ekki fréttast að hann hafi unnið! "Ég vil alls ekki að menn telji mig skáknörd!"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.7.2007 | 23:00
Borgarfjarðarblogg!
Eftir N1-mótið hélt fjölskyldan á ættaróðalið Sólheimatungu í Borgarfirði. Þar áttum við frábæra viku. Um helgina var fullt hús af gestum. Mamma kom, Stebbi bróðir og fjölskylda kom og var reyndar bara yfir einn dag. Gunna, vinkona Ídu, og fjölskylda hennar kom og var í 2 nætur sem og Helga vinkona hennar var einnig þarna.
Andrés, vinur Gunnars Vals, var þarna með okkur allan dag og skemmtu þeir svo konunglega. Voru heilmikið í Norðuránni og skemmtu sér konunglega í eyri þarna sem er yfirleitt í kafi en var nú upp úr ánni enda óvenju lítið vatn í henni.
Í myndasafninu má finna skemmtilegar myndir frá ferðinni. Þarna má sjá myndir af strákunum í ánni, Bósunum báðum og meira!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2007 | 22:40
Að loknu N1-móti
Þá er loks komið að lokauppgjöri N1-mótsins en ég var eitthvað lengi að komu þessu frá mér. Liði stráksins gekk vel. Slysalegt tap reyndar gegn Stjörnunni en síðan góðir sigrar gegn FH og ÍBV og fimmta sætið raunin. Liðið fékk aðeins fjögur mörk á sig og aðeins 1 lið af 144 fékk á sig færri mörk! Frábær árangur hjá strákunum og með smáheppni hefði verðlaunasæti geta náðst.
Sama lið hefur svo verið að brillera og er efst á Íslandsmótinu í sínum flokki og þar hefur GVG staðið vel síðustu leiki, reyndar eins og allt liðið, og raðað inn mörkum, 3 gegn ÍR í gær og 2 gegn KR í dag.
Nokkrar myndir eru komnar til viðbótar. Má þar finna mynd af koddaslag, Stefáni Már gítarleikara og nokkrar góðar myndir af liðinu!
Myndasafnið má nálgast efst til vinstri
Lifi Þróttur!
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.7.2007 | 16:49
Okrað á boltaþyrstum
Ég hef verið áskrifandi á Sýn um nokkurn tíma. Ég færði símann yfir til Vogafone og gekk í OG1 eingöngu vegna þess að þar boðið upp á Sýn á 2.000 kr. og var auk þess með enska boltann. Nú fékk ég kurtleislegt bréf frá Vodafone og mér tjáð að þessi díll væri ekki lengur í boði og framvegis þyrfti ég að borga fullt gjald fyrir Sýn. Ég hringdi niður í þjónustumiðstöð 365 enda hvergi hægt að finna verðið á vefnum og var þar sagt að fullt verð væru á milli 4000 og 5000 kr.
Fái maður sér Sýn2 kostar pakkinn rúmar 7.000 kr. og þá aðeins svo "ódýrt" að maður gangi í M12. Semsagt nærri 90.000 á ári!
Ég hef fengið nóg og sagði upp Sýn. Þetta verð er ekki boðlegt. Sennilega er eina vitið að fá sér SKY-lykil.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)