Klúður Steingríms og eitt stykki reiður ráðherra - spáð í ráðherraembættin!

SteingrímurÞað var sérstakt að horfa á Kastljósið í kvöld.  Steingrímur Joð, sem sá allt í einu drauminn blauta um samstjórn með Sjálfstæðisflokkinn fjara út á sandinn, var nú tilbúinn að vinna með Framsókn og gera ISG að forsætisráðherra.  Það er aldeilis!   Guðni, sem er eldri i en tvævetur í pólítík, hafði gleymt því að það borgar sig ekki að fara í fjölmiðla þegar maður er reiður.  Það var skelfilegt að sjá framkomu Guðna sem kenndi DV og Baugi um að fylgið Framsóknar fór ekki upp á við.   Búhúhúhú.

Mér lýst vel á þessa stjórn og tel þetta besta kostinn í spilinu.  Þetta verður sterk stjórn sem vonandi mun taka m.a. á bruðlinu í landbúnaðarkerfinu og vonandi vakna nú Evrópusinnarnir  í Sjálfstæðisflokknum sem hafa haldið sig allt of lengi til hlés.  

Að lokum ráðherralisti í boði GB.   

Nokkrir fyrirvarar.  Ég geri ráð fyrir skiptingunni 6-6.  Hugsanlegt er að ráðherrum verði fækkað.  Ég geri ráð fyrir ISG stilli upp jöfnu kynjahlutfalli.  Einnig geri ég ráð fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn muni hafa tvær konur í flokknum í stjórninni.  Svo geri ég ráð fyrir einhverjum tilfærslum á embættum.  Ég geri ekki ráð fyrir Sjálfstæðisflokkurinn hleypi Samfylkingu í landbúnaðarráðuneytið en ég geri ráð fyrir dómsmálin fari yfir til Samfylkingar til að losa Sjálfstæðisflokkinn úr þeirri úlfakreppu sem hann er þar í.  Sjálfstæðisflokkurinn taki heilbrigðisráðuneytið (sem Samfylkinginn vill örugglega líka) en Samfylkingin taki þess í stað menntamálaráðuneytið.    

  • Geir: forsætisráðherra
  • Ingibjörg: utanríkisráðherra
  • Árni Matt: fjármálaráðherra
  • Ágúst Ólafur: dómsmálaráðherra
  • Arnbjörg: landbúnaðarráðherra
  • Kristján Júl: samgönguráðherra
  • Þorgerður Katrín: heilbrigðisráðherra
  • Björgvin: menntamálaráðherra
  • Einar  K: Sjávarútvegsráðherra
  • Össur:  Viðskipta- og iðnaðarráðherra
  • Katrín:umhverfisráðherra
  • Jóhanna: félagsmálaráðherra
Björn Bjarnason verði forseti Alþingis.  

Reyndar er erfitt að spá í þetta.  "Hin konan" hjá Sjálfstæðisflokknum gæti allt eins verið Guðfinna en ekki Arnbjörg.  Svo gæti t.d. Kristján Möller orðið ráðherra.   Einnig er mögulegt að Björn Bjarna verði ráðherra um tíma og settur síðar til hliðar til að minnka fallið.   Svo gæti Sturla haldið sínu embætti og Kristján yrði látinn bíða um tíma.   Svo getur skipting ráðuneytina orðið allt önnur en þessi!

En spennandi tímar enn í gangi!  

 


mbl.is Ingibjörg Sólrún: VG vildi ekki mynda stjórn með Framsóknarflokki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björn kann að dissa eins og Geir

Björn BjarnasonÍ fyrradag var eftir því tekið að Geir H. Haarde dissaði Árna Johnsen þegar hann tók ekki í hendi hans á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins.  Nú er reyndar sagt að hann hafi þegar verið búinn að heilsa honum fyrir fundinn.  Björn vill ekki vera maður en Geir og dissaði með yfirlýsingu sinni fyrr 2514 kjósendur síns eigin flokks. 

Geir á greinilega langt í land ætli hann að ná Birni í dissinu, bara 2513 í viðbót!

 


mbl.is Hreinn: Dómur kjósenda um verk Björns liggur fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðræður Sjálfstæðisflokks og VG hafnar - svo segir Denni

SteingrímurSvo segir Denni á Vísisblogginu.  Kemur á óvart eða hvað?  Er þetta með vitund og vilja Framsóknarmanna? Ó, varla því mjög kalt er á milli þeirra og VG.  Og hvað verður um stóriðjustopp VG-inga sé þetta málið?  Gefa þeir eftir neðri hluta Þjórsár?  Eða verður virkjað í Helguvík?   Og svo ráðherralistinn.  Verður Ögmundur bankamálaráðherra?  Steingrímur utanríkisráðherra?

Hér eru drög af ráðherralista í boði GB (geri ráð fyrir 7-5 skiptingu):

 

 

  • Geir: forsætisráðherra
  • Steingrímur: utanríkisráðherra
  • Árni Matt: fjármálaráðherra
  • Bjarni Ben: dómsmálaráðherra
  • Jón Bjarna: landbúnaðarráðherra
  • Kristján Júl: samgönguráðherra
  • Þorgerður Katrín: heilbrigðisráðherra
  • Guðfinna: menntamálaráðherra
  • Einar  K: Sjávarútvegsráðherra
  • Ögmundur:  Viðskipta- og iðnaðarráðherra
  • Kolbrún:umhverfisráðherra
  • Katrín: félagsmálaráðherra

Ég geri ráð fyrir að hinn útstrikaði Björn Bjarna fái svo dúsu og verði forseti Alþingis.  

Spennandi tímar framundan?   Þegar stórt er spurt.........


mbl.is Biðstaða í viðræðum stjórnarflokkanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mun Johnsen hafa líf ríkisstjórnarinnar í hendi sér - hendi sem Geir vildi ekki taka í?

ÁrniJohnsenÍ hádegisfréttum Stöðvar 2 í dag var sýnt frá fyrsta þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins, sem fram fór í gær, þar sem greinilega sást að formaður flokksins Geir H. Haarde sleppti því vísvitandi að taka í hendur Árna Johnsen en virtist taka í flestar aðrar hendur.

Nú stefnir margt til þess að stjórnin haldi áfram með eins sætis meirihluta.  Árni Johnsen getur þá haft líf stjórnarinnar í hendi sinni - hendinni sem Geir vildi ekki taka í.

Og hvaða dúsu fær svo Árni?  Verður hann kannski formaður samgöngunefndar?   


Hatur virðist ríkja á milli VG og Framsóknar

Ögmundur JónassonEftir kosningar þótti mér möguleiki að úr þeim kynni að koma "R-lista stjórn" það er að Framsókn kynna að kjósa að skipta um hest í miðri á enda hefur flokkurinn tapað 9 af 16 þingmönnum sínum frá því að þeir hófu stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum árið 1995.  En á því eru engar líkur því á milli Framsóknar og VG virðist ríkja hatur.      

Það mátti t.d. sjá á orðræðu Steingríms Joðs til Jóns Sigurðssonar, þar sem hann krafði hann um afsökunarbeiðni, í uppgjöri stjórnmálamannanna í RÚV í gær og svo í nokkuð furðulegum Kastljósþætti í kvöld þar sem mjög köldu andaði á milli Guðna og Ögmundar og í raun óskiljanlegt að þeir hafi látið til leiðast að mæta í þennan þátt því hvorugur þeirra virtist vera í góðu formi, Guðni fúll yfir fylgi flokksins, og Ögmundur fúll yfir því að vera ekki sætasta stelpan!

 


Framsókn að svíkja fyrsta kosningaloforðið?

Guðni ÁgústssonFyrir kosningar höfðu nokkrir meðal helstu ráðamenna Framsóknar, stór orð um það að í stjórn færu þeir ekki fengi flokkurinn ekki viðunandi fylgi.  Engin forystumanna Framsóknar hafði upp önnur orð.  Niðurstaðan er skýr.  Framsókn fékk afhroð, minnsta fylgi í 90 ára sögu flokksins, formaðurinn féll, umhverfisráðherrann féll og fengu ráðherrarnir tveir minna fylgi en borgarfulltrúinn Björn Ingi Hrafnsson fékk í síðustu borgarstjórnarkosningum.

Tveimur dögum eftir kosningar er annað hljóð komið í strokkinn.  Guðni segir úrslitin ekki skilaboð þess efnis að Framsókn eiga að stíga til hliðar og almennt heyrist mér að forystumenn flokksins stefni á áframhaldandi stjórnarsamstarf. 

Semsagt aðeins tveimur dögum eftir kosningar á að svíkja nýjasta "kosningaloforðið".

Svo furða Framsóknarmenn á því að fólk hafi refsað þeim í nýliðnum kosningum.  I wonder why!


mbl.is Geir: Sérstök ákvörðun ef stjórnarsamstarfið heldur ekki áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerir Framsókn?

FramsóknÍ umræðuþáttum dagsins er almennt talað á þeim nótum að Geir hafi öll háspilinn.  En er það svo?  Hafa Framsóknarmenn ekki nokkur tromp á hendi?

Möguleikar Framsóknar eru að mínu mati þrír:

1. Þeir geta lýst vilja sínum til að halda áfram í núverandi stjórnarsamstarfi.   Reyndar er það ekki í samræmi við yfirlýsingar forystumanna flokksins í kosningabaráttunni og sennilega er það gegn vilja meginþorra flokksmanna sem margir hverjir vilja nú fara í stjórnarandstöðu og freista þess að byggja upp flokkinn eftir skellinn.  Auk þess er ekki víst að Sjálfstæðisflokkurinn vilji fara í svo veika stjórn.  Ekki vildi hann það með Alþýðuflokknum 1995.  Ekki nema þá að bæta við Frjálslyndum en Sjálfstæðismenn hafa ávallt talað niður til þriggja flokka stjórna svo það er sennilega ólíklegt að þeir hafi áhuga á slíkri stjórn.   

2. Þeir geta unnið til vinstri.  Ef Jón vill getur hann hringt í Ingibjörgu og boðið henni forsætisráðherrastólinn í vinstri stjórn.  Ingibjörg og Steingrímur Joð eru án efa til í þann slag.

3. Geta ákveðið að vera utan stjórnar til að byggja upp flokkinn.  Þá fengi Geir frítt spil og myndi þá væntanlega leita til Ingibjargar eða Steingríms.  

Ef ég væri Framsóknarmaður myndi ég velja kost þrjú.  Jón á að stíga til hliðar og velja á nýjan og ferskan eftirmann.  Björn Ingi Hrafnsson gæti þar verið álitlegur en hann fékk nokkru meira fylgi en formaðurinn og umhverfisráðherra fengu nú í dag sem verður að teljast athyglisvert.  Svo er það Guðni.  Vill hann verða formaður?   

Hvað gera Framsóknarmenn?   Eins og Steingrímur Sævarr Framsóknarmaður myndi orða það.   Þegar stórt er spurt.....   


mbl.is Jón: Óeðlilegt að tala um flokkinn með þessum hætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppkjör kosninganna - GB með bestu spánna!

Úrslitin nú kunn og spennan í kringum þær var mikil.  VG og Sjálfstæðisflokkurinn unnu á, Samfylking vann "kosningabaráttunna" en tapaði tveimur þingmönnum.  Frjálslyndir héldu haus og Íslandshreyfingin náði því sem margir óttuðust, þ.e. að halda stóriðjuflokkunnum að völdum.  Fróðlegt er að bera saman mína spá og kosningaúrslitin en ég fór miklu nær þeim heldur en skoðanakannanir! 

En gerum upp kosningarnar:

Sjálfstæðisflokkurinn vinnur ágætis sigur og ljóst að Geir er vinnu flokkinn úr þeirri stöðu sem Davíð Oddsson kom honum í.  Enginn afburðarsigur en meðalfylgi flokksins í gegnum árin er 39% þannig að flokkurinn á lnokkuð í land.  Björn Bjarnason og Árni Johnsen virðast hafa beðið afhroð í útstrikingum í sínum kjördæmum og staða þeirra innan flokksins löskuð.   Óvænti þingmaðurinn er Ragnheiður Ríkharðsdóttir!

Samfylkingin tapar fylgi og er með nánast með sama fylgi og fyrir átta árum síðan. Athyglisvert er að fylgi flokksins minnkaði þegar á leið nóttina.  Kjósa Samfylkingarmenn fyrr en aðrir?   Þrátt fyrir tapið geta Samfylkingarfólk þokkalega við unað enda stefndi í afhroð um tíma.  Ingibjörg sigraði kosningabaráttuna en tapaði kosninganóttinni!  Óvænti þingmaðurinn er Ellert B. Schram!

Vinstri grænir unnu stórsigur og nánast tvöfölduðu þingmannafjöldann.  Mér finnst það hins ákaflega súrt að Guðfríður Lilja Grétarsdóttir hafi ekki náð kjöri en ég var mjög hneykslaður á VG-fólki þegar þeir settu Lilju í 2. sætið í Kraganum og þess í stað Álfheiði og Árna Þór í 2. sætið í Reykjavíkurkjördæmunum en Lilja rúllaði yfir þau bæði í prófkjöri flokksins. Gömlu kommarnir standa saman og Lilja leið fyrir það og VG í framtíðinni því að þeirra besti fulltrúi fékk ekki þingsæti.   Vinstri grænir misstu mikið fylgi í kosningabaráttunni og sigur þeirra því að einhverju leyti súr.  Enginn óvæntur þingmaður hjá VG.    Helst þó Álfheiður Ingadóttir.  

Framsókn fékk sín verstu úrslit í 90 sögu flokksins og formaður flokksins féll af þingi en slíkt hefur ekki gerst fyrir formann þingflokks síðan 1983 þegar Geir Hallgrímsson féll.   Framsóknarmenn hljóta að hugsa sinn gang en bæði Valgerður og Guðni hafa lýst því yfir að flokkurinn eigi ekki halda áfram í stjórn hljóti flokkurinn afhroð.  En mun flokkurinn standa við það? Að öllu eðlilegu ætti Jón að segja af sér og hleypa yngri manni að og dettur manni þá fyrst í hug nafn Björns Inga Hrafnssonar.  Óvænti þingmaðurinn er  Höskuldur Þór Þórhallsson!

Frjálslyndir héldu sínum fjórum þingmönnum og geta þokkalega við unað.  Þeir hafa náð því að komast þrisvar í röð á þing sem er óvenjulegt fyrir "fimmta" flokk og virðast hafa fest sig í sessi.  Guðjón Arnar var seigur í kosningabaráttunni en málflutningur hans er miklu geðslegri heldur en sumra skósveina hans.  Magnús Þór féll af þingi sem hlýtur að vera mikið áfall fyrir krónprinsinn en væntanlega er þetta síðasta kjörtímabil Guðjóns.  Óvænti þingmaðurinn er Kristinn H. Gunnarsson!

Íslandshreyfingin tókst það sem hún ætlaði sér ekki, þ.e. að halda "stóriðjuflokkunum" að kjötkötlunum.   Betur heima setið.  

Að lokum vil ég bera saman spá mína og úrslitin: 

  • B 12% (11,7%)
  • D 36% (36,6%)
  • F   6% (7,3%)
  • I    3% (3,3%)
  • S 29% (26,8%)
  • V 14% (14,3%)

 


mbl.is 22% strikuðu yfir Árna Johnsen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnar Björnsson kaus í Laugardagshöll

Gunnar Björnsson bankastarfsmaður og formaður Taflfélagsins Hellis greiddi sitt atkvæði í Alþingiskosningunum í Laugardagshöllinni í Reykjavík í morgun.Smile

Njótið dagsins og kjósið rétt! 


mbl.is Geir H. Haarde kaus í Hagaskóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

S-flokkarnir sterkir - Misjöfn frammistaða í Sjónvarpi

 

Fylgi Framsóknarflokks

 

Ný könnun Gallups staðfestir slaka útkomu Framsóknar og stefnir nú í slökustu frammistöðu flokksins í 90 ára sögu hans.  Ég er hræddur um að guðfaðir og stofnandi flokksins, Jónas frá Hriflu, myndi snúa sér við gröfinni, sæi hann flokk sinn, sem fékk 36% fylgi undir leiðsögn hans fyrir um 75 árum síðan.   Kannanir Félagsvísindastofnunar og Gallups eru fremar áþekkar að því undanskyldu að það munar nokkru á Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu.  Ætli niðurstaða liggi ekki einhvers þarna á milli.  Leiðtogafundurinn á RÚV var fremur litlaus a.m.k. í samanburði við nýlegan fund á Stöð 2.  Allir stóðu þeir vel formennirnir nema tveir.

Geir var öruggur að vanda, Ingibjörg var sömuleiðis góð, Steingrímur var minna geðvondur nú en á Stöð 2 um á daginn og Guðjón var traustur og öruggur.  Einhvern er það þannig að mér lýst miklu betur á Frjálslynda flokkinn þegar Guðjón talar en þegar einhverjir skósveinar hans tala.

Ómar og Jón stóðu hinum fjórum langt að baki.  Ómar er frábær karl en einhvern veginn nær hann ekki til manns sem pólítíkus.  Ég held að kjósendur Íslandshreyfingarinnar eigi að kjósa annan flokk til að atkvæði þeirra nýtist og ætti þá Samfylking væntanlega að vera fyrsti kostur.

Jón náði sér engan veginn á strik og fannst mér hreinlega eins og honum liði illa.  Sérstaklega var þetta áberandi þegar hann talaði ekki en lenti engu að síður í mynd.   

Jæja, það stefnir í spennandi kosningar á morgun!  Og spáin stendur sem fyrr:

  • B 12% - 8 þingmenn
  • D 36% - 23 þingmenn
  • F   6% - 4 þingmenn
  • I    3% - 0 þingmenn
  • S 29% - 19 þingmenn
  • V 14% - 9 þingmenn


mbl.is Fylgi Framsóknarflokks dalar á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband