Færsluflokkur: Skák
14.2.2007 | 21:51
Skákmeistari í framboði!
Alþjóðlegi skákmeistarinn, Jón Viktor Gunnarsson, er í framboði fyrir VG í Reykjavíkurkjördæmi suður, reyndar aðeins í 19. sæti svo möguleikarnir á þingsæti eru heldur litlir!
Jón Viktor er reyndar ekki eini skákmeistarinn í framboði fyrir VG, því Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, forseti Skáksambandsins er í 2. sæti VG í Kraganum og hefur veika von um þingsæti.
Ekki minnist ég þess að það sé algengt að sterkstu skákmenn þjóðarinnar hafi verið á framboðslistum. Þó minnist ég þess að hafa séð nafn Ingvars Ásmundssonar á framboðslista Samtaka frjálslyndra og vinstrimanna á sínum tíma sem og nafn Margeirs Péturssonar á lista Sjálfstæðisflokksins.
Skák | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.2.2007 | 21:10
Rætist draumur Ingvars?
FIDE-meistararnir og Hellisbúarnir Sigurbjörn Björnsson og Ingvar Þór Jóhannesson eru efstir, með fullt hús, að loknum fjórum umferðum. Þeir mætast einmitt í fimmtu umferð, sem fram fer á morgun, og stjórnar Ingvar hvítu köllunum.
Það er athyglisvert að Ingvar Þór skráði sig í mótið mjög seint, hafði ekki ætlað að vera með. Hann sofnaði hins vegar eftir og dreymdi þá að hann ynni Sigurbjörn með hvítu og dreif sig á mótsstað til að freista gæfurnar og hefur gengið mjög vel!
Sigurbjörn hefur verið sjóðheitur og greinilegt að sigur hans á Skákþingi Reykjavíkur var engin tilviljun en Sigurbjörn tók Snorra G. Bergsson vann Snorra Bergsson nokkuð örugglega í mjög vel tefldri skák í 4. umferð. Running Riot!
Margir keppendur eru í 3-.9. og þar geta hæglega bæði Davíð Ólafsson og Björn Þorfinnsson blandað sér í baráttuna um meistaratitil Hellis 2007.
Mikið var óvænt úrslit í 4. umferðinni. Ingvar Ásbjörnsson gerði jafntefli við Braga Þorfinnsson, Helgi Brynjarsson, sem hefur verið á mikilli siglingu síðustu mánuði, og er nú í 3.-9. sæti vann Hrannar Baldursson og Gísli Hólmar Jóhannesson vann Hjörvar Stein Grétarsson.
Hjörvar er að upplifa það sem allir ungir og efnilegir skákmenn hafa gengið í gegnum, þ.e eiga að sinn slæma kafla. Þetta er vonandi síðasta slæma mótið í bili hjá Hjörvari.
Fimmta umferð, fer fram í á morgun. Þá mun línur væntanlega enn skýrastog e.t.v. verða enn fleiri óvænt úrslit!
Áhorfendur velkomnir! Boðið upp á kaffi og kók í boði Hellis!
Skákir og úrslit má nálgast á Skák.is og heimasíðu Hellis.
Skák | Breytt s.d. kl. 21:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2007 | 20:34
Skákkennsluvefur - VideoChess.net
Stórmeistarinn Henrik Danielsen hafa sett upp einkar glæsilegan skákvef, Videochess.net, sem er getur nýst til skákkennslu um allan heim hvort sem það er í Namibíu, en þar fengu þeir einmitt hugmyndina þegar þeir voru að útbreiða skákboðskapinn þar árið 2005, á Grænlandi, eða hvar sem er í heiminum!
Flott framtak hjá sem vonandi gengur sem best!
Fréttatilkynningu frá þeim félögum má finna hér:
Dear Friend.
Just a quick note to tell you about our new webpage www.videochess.net a place on the Internet where everyone can get free chess lessons. This page contains everything; from elementary lessons, for beginners, to advanced lectures of the very best quality.
So, if you are a chess enthusiast, whether you are a beginner, intermediate or an advanced player, you will always find something of interest. The page is updated daily, and furthermore, we are already experimenting with live chess lessons.
We are always adding new languages to our catalog and we also have a fun area containing cartoons and other entertaining videos.
The idea for this page was conceived in the year 2005 when we were teaching chess to
children in Namibia, Africa. Already we knew that chess can help children, and all individuals for that matter, to build their character, their self-esteem and develop their initiative and decision-making skills. We then saw how visual learning can be utilized, and so we started to film our own teachings. These lessons will gradually be brought onto VideoChess.Net
It is our vision that all children, regardless of ethnic origin and personal background, will be given an opportunity to learn how to maximize their potentials to the fullest. A lot of skills can be picked up through learning the game of chess. Therefore, everyone can gain from looking at our everexpanding material. Using VideoChess.Net is free of charge.
Yours Sincerely,
Henrik Danielsen
Kristian Guttesen
Skák | Breytt s.d. kl. 20:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2007 | 18:09
Skákakademía Reykjavíkur
Í Fréttablaðinu í gær var að finna frétt um Skákakademíu Reykjavíkur og ætli að leggja í þetta 3 mkr. og að safna eigi allt að 20 mkr. í pakkann. Akademían á meðal annars að vera í samvinnu við skákfélögin í Reykjavík og ráða á verkefnisstjóra til 6 mánaða til að koma þessu af stað. S
Í fundargerð borgarráðs segir:
"30. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra frá 5. þ.m. um stofnun Skákakademíu Reykjavíkur:
Lagt er til að borgarráð samþykki að sett verði á laggirnar sjálfseignarstofnun, Skákakademía Reykjavíkur, sem vinni að eflingu skáklistarinnar í borginni með það að markmiði að Reykjavík verði orðin Skákhöfuðborg heimsins árið 2010. Skákakademía Reykjavíkur annist stefnumótun og framkvæmd í samráði við Skáksamband Íslands, skákfélögin í Reykjavík, grunnskóla í borginni, félagasamtök, einstaklinga og fyrirtæki. Framlag Reykjavíkurborgar til undirbúnings og stofnunar Skákakademíu Reykjavíkur verði kr. 3.000.000 en leitað verði þátttöku annarra þannig að heildarstofnfé nemi um kr. 20.000.000. Kostnaði Reykjavíkurborgar verði mætt með framlagi af #GLStyrkjum á vegum borgarráðs 09301#GL. Þá samþykkir borgarráð að verkefnisstjóri verði ráðinn til 6 mánaða til þess að undirbúa stofnun Skákakademíu Reykjavíkur ásamt starfshópi skipuðum fulltrúum menntaráðs og ÍTR, fulltrúa frá Skáksambandi Íslands og einum stórmeistara. Borgarstjóra verði falið að ráða verkefnisstjóra, skipa starfshópinn og leita eftir stofnframlögum frá samtökum og fyrirtækjum.
Greinargerð fylgir tillögunni. R07020021
Frestað."
Gott framtak hjá Villa, Binga og nýja meirihlutanum! Strax farið að ráðstafa hluta af 600 milljónum hans Björgólfs sem VG vildi ekki fá!
Ég bíð spenntur eftir því að heyra meira.
Skák | Breytt s.d. kl. 19:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.2.2007 | 17:58
Fjör á Meistaramóti Hellis
Óvænt úrslit urðu í þriðju umferð Meistaramóts Hellis sem fram fór í gærkvöldi. Ingvar Þór Jóhannesson vann góðan sigur á stigahæsta keppandanum Braga Þorfinnssyni og virðist til alls líklegur á mótinu og Jóhann Ingvason sigraði Davíð Ólafsson í góðri skák.
Snorri Bergsson vann Björn Þorfinnsson þar sem allt var upp í loft eins og svo oft hjá Birni. Sigurbjörn Björnsson, skákmeistari Reykjavíkur, vann svo góðan sigur á Hrannari Baldurssyni og var þar riddari í aðalhlutverki svo það minnti helst á riddarameistarann Þröst Þórhallsson!
Ingvar, Snorri, Sigurbjörn og Jóhann eru efstir með fullt hús. Ingvar Ásbjörnsson er fimmti með 2,5 vinning. Í fjórðu umferð, sem fram fer á mánudag mætast Sigurbjörn og Snorri, Ingvar Þór og Jóhann og Bragi og Ingvar Ásbjörnsson.
Sjálfur var ég ekki viðstaddur í gær enda var ég að fagna góðri afkomu Landsbankans ásamt Halldóri, Sigurjóni og Björgólfi.
Skák | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.2.2007 | 23:00
Níu efstir á Meistaramóti Hellis
Níu skákmenn eru efstir og jafnir að lokinni 2. umferð Meistaramót Hellis en úrslit urðu hefðbundin, þ.e. stigahærri unnu iðulega hina stigahærri. Sjá nánar úrslit á Skák.is
Í fyrstu færslu minni um Meistaramótið eyddi ég nokkru púðri á fyrri sigurvegara. Mér ljáðist að nefna Hrannar Baldursson sem er enn einn keppandinn, sem nú tekur þátt, og hefur sigrað á Meistaramóti Hellis en hann vann árið 1997, þá nokkuð óvænt enda langt frá því að vera stigahæstur. Þá fékk Björn Þorfinnsson titilinn eftir að hafa sigrað Vigfús Ó. Vigfússon í einvígi en þeir urðu efstir Hellisúa. Kannski að ártöl sem endi á sjö séu happatala Hrannars?
Athyglisvert er að skoða í hvaða félögum keppendur eru. Þar er skiptingin sem hér segir (með fyrirvara um að ég einhverjir þeirra, sem eru skráðir utan félaga séu í félagi.
- Hellir 18
- Fjölnir 4
- SR 3
- TR 3
- TG 2
- Utan félaga 6
Hellsmenn eru semsagt ríflega helmingur keppenda. Athygli vekur hins að Fjölnismenn séu næst fjölmennastir og að Reyknesingar séu jafn fjölmennir og TR-ingar, sem er fjölmennasta taflfélag landsins en keppendur úr TR eru aðeins þrír.
Það hefur lengi loðað við TR-inga að þeir séu sjálfum sér nægir og tefli helst bara á mótum eigin félags á meðan félagar annarra félaga setji ekki fyrir sig hvar mótin fara fram. Til samanburðar skoðaði ég Skeljungsmótið - Skákþing Reykjavíkur og athugaði skiptinguna þar. Þó sé vil ég setja vissa fyrirvara við þessa samantekt því ekki var skráð í mótstöflu í hvaða félagi skákmennirnir þar eru og er þetta því gert eftir bestu vissu minni. Þar kom niðurstaðan mér töluvert á óvart.
- Hellir 20
- TR 15
- Fjölnir 3
- Haukar 3
- SR, TG, TV og UMFB 2
Það kemur mér mjög á óvart að Hellismenn hafi verið töluvert fjölmennari en TR-ingar á Skákþingi Reykjavíkur, mót sem TR heldur og út af fyrir sig athyglisvert að fleiri Hellismenn tóku þátt í Skákþingi Reykjavíkur heldur en á Hellismótinu.
Mér kæmi hreinlega ekki á óvart þótt þetta sé einsdæmi að TR-ingar séu ekki fjölmennastir á mótinu. Málið er að það hefur lengi loðað við Hellismenn að þeir væru óvirkir en svo virðist alls ekki vera raunin um þessar mundir heldur virðast Hellismenn vera töluvert virkari skákmenn en félagsmenn annarra félaga í Reykjavík og nágrenni þess.
Skák | Breytt s.d. kl. 23:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2007 | 23:48
Meistaramót Hellis hafið!
Meistaramót Taflfélagsins Hellis hófst í kvöld og er þátttaka prýðisgóð en alls taka þátt 35 skákmenn sem er með því betra í 16 ára sögu mótsins. Mótið er líka óvenju sterkt. Stigahæstur keppenda er Bragi Þorfinnsson en auk hans taka þátt fimm FIDE-meistarar, þeir Björn Þorfinnsson (bróðir Braga), Sigurbjörn Björnsson, sem nýlega var skákmeistari Reykjavíkur, Davíð Ólafsson, sem hefur aðeins einu sinni áður tekið þátt á mótinu, og vann þá með fullu húsi, ofurbloggarinn Snorri G. Bergsson og Ingvar Þór Jóhannesson.
Allir eru þeir í Helli nema Snorri sem er í TR. Hellismönnum gekk annars vel í Skákþingi Reykjavíkur, en fjóri Hellismenn voru meðal fimm efstu.
Björn er sigursælastur allra á Meistaramótinu, en hefur hampað titlinum sex sinnum! Næstu menn hafa orðið tvöfaldar meistarar. Snorri og Davíð og hafi unnið hvort skiptið. Sigurbjörn hefur unnið mótið reyndar tvisvar en í hvorugt skiptið fékk hann titilinn enda þá meðlimur í Skákfélagi Hafnarfjarðar. Björn hreppti þá titilinn í bæði skiptin! Núverandi skákmeistari Hellis, Omar Salama, tekur ekki þátt en hann mun tefla á Aeroflot Open í Moskvu sem hefst síðar í mánuðnum.
Skákmeistarar Hellis frá upphafi eru annars (siguvegari í sviga ef annar en meistari):
- 1992: Andri Áss Grétarsson
- 1993: Þröstur Þórhallsson
- 1994: Þröstur Þórhallsson
- 1995: Snorri Guðjón Bergsson (Þröstur Þórhallsson)
- 1996: Andri Áss Grétarsson
- 1997: Björn Þorfinnsson (Hrannar Baldursson)
- 1998: Björn Þorfinnsson (Sigurbjörn J. Björnsson)
- 1999: Björn Þorfinnsson (Sigburbjörn J. Björnsson)
- 2000: Davíð Kjartansson (Sævar Bjarnason)
- 2001: Davíð Ólafsson
- 2002: Björn Þorfinnsson
- 2003: Björn Þorfinnsson (Björn Þorsteinsson, Davíð Kjartansson og Björn Þorfinnsson)
- 2004: Björn Þorfinnsson
- 2005: Sigurður Daði Sigfússon
- 2006: Omar Salama
Úrslit fyrstu umferðar urðu hefðbundin þ.e. hinir stigahærri unnu hina stigalægri. Hinn ungi og efnilegi skákmaður Hjörvar Steinn Grétarsson tapaði þó slysalega fyrir félaga sínum úr Rimaskóla, Herði Aroni Haukssyni, þegar hann lék sig mát í einum leik. Hjörvar mun án efa sér í strik og blanda sér í toppbaráttuna.
Önnur umferð fer fram á miðvikudaginn. Hægt verður að fylgjast með úrslitum og skákum á Skák.is og heimasíðu Hellis. Hér á blogginu verður umfjöllun á léttari nótunum.
Skák | Breytt s.d. kl. 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.2.2007 | 23:29
Svindlar Topalov?
Síðasta heimsmeistaraeinvígi í skák, á milli Topalovs og Kramniks, vakti töluverða athygli. Þó ekki eingöngu vegna skákanna sem voru heldur vegna ásakanna Topalovs og hans aðstoðarmanna um að Kramnik hafi svindlað og nefndu þar tíðar salernisferðar Kramniks.
Nú hefur dæmið hins vegar snúist við og er Topalov sagður hafa svindlað og eru þar nefndar grunsamlegar handahreyfingar Danilovs aðstoðarmanns hans. Engar sannanir eru til en sagt er að til sé myndband sem sanni svindl Topalovs og á það að hafa verið sýnt Kasparov sem segi að svara þurfi spurningum. Einnig munu bæði Kasimdzhanov og Morozevich vera sannfærðir um að ekki hafi allt verið með felldu þegar Topalov sigraði í San Luis með yfirburðum og var þar með FIDE-heimsmeistari. Auk þess hefur enski stórmeistarinn Short talið rétt að málið sé nánar rannsakað. Menn hafa m.a. bent á Topalov hafi tekið stórt styrkleikastökk um þrítugt sem þykir seint.
En auðvitað á Topalovs að njóta vafans á meðan engar órækar sannanir liggja fyrir. Topalov sjálfur segir þessar ásakanir hlægilegar
Hugsvegar er það ekki skákin til framdráttar á meðan slíkar ásakanir eru uppi hvort sem þær eru sannar eða ekki.
Sjá nánar greinar í Guardian sem má finna hér og hér og grein þýska blaðsins Süddeutsche Zeitung
Skák | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2007 | 14:57
Sigurbjörn skákmeistari Reykjavíkur

Sigurbjörn Björnsson vann öruggan sigur á Skákþingi Reykjavíkur. Sigurbjörn hefur verið einkar sigursæll á skákmótum innanlands og hefur t.d. sigrað að ég held fjórum sinnum á Skákþingi Reykjavíkur. Þetta er þó í fyrsta sinn sem Sigurbjörn er skákmeistari Reykjavíkur enda meðlimur í Reykjavíkurfélaginu, Taflfélaginu Helli, en áður var hann meðlimur í Skákfélagi Hafnarfjarðar og gat því ekki orðið Reykjavíkurmeistari.
Reyndar hefur Sigurbjörn einnig sigrað tvisvar á Meistaramóti Hellis en gat þó ekki orðið meistari félagsins enda þá ekki gengin í félagið. Það hefur því lengi loðað við Sigurbjörn að vinna mót en fá ekki meistaratitilinn!
Annar var Bragi Þorfinnsson og í 3.-5. sæti urðu Sævar Bjarnason, Omar Salama og Kristján Eðvarðsson. Eftirtektarvert að 4 af 5 efstu mönnum eru úr Helli, þ.e. allir nema Sævar sem er í Taflfélagi Vestmannaeyja.
Lofar góðu fyrir Hellismenn fyrir Íslandsmót skákfélaga, sem fram fer í marsbyrjun en þar leiðir félagið með 5 vinningum á Taflfélag Vestmannaeyja.
Henrik Danielsen var meðal þeirra sem höfnuðu í 6.-11. sæti, náði sér aldrei á strik. Þetta var í fyrsta sinn í sjö ár að stórmeistari tekur þátt í Skákþingi Reyjavíkur en Þröstur Þórhallsson tók þátt í mótinu 2000 og vann þá titilinn eftir einvígi við Braga. Bragi var því annar þá rétt eins og nú. Þar áður voru örugglega sennilega 25 ár síðan stórmeistari tók þátt en ef mér misminnir ekki þá tefldi Friðrik Ólafsson á mótinu árið 1975.
Til hamingju með sigurinn, Sigurbjörn!
![]() |
Sigurbjörn Björnsson Skákmeistari Reykjavíkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Skák | Breytt s.d. kl. 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.1.2007 | 22:43
Skákmeistari í boði Kaupþings!
Hinn ungi og efnilegi færeyski skákmaður, Helgi Dam Ziska, sem er aðeins 16 ára, er orðinn alþjóðlegur meistari í skák, og er nú einn alefnilegasti skákmaður norðurlanda.
Árangur Helga Dam hefur vakið mikla athygli í heimalandi hans og var kosinn íþróttmaður ársins 2006 í Færeyjum. Aðalstyrktaraðili Helga er í Kaupþing í Færeyjum og hefur það ekki farið fram hjá neinum sem til þekkir hversu Kaupþingsmenn í Færeyjum eru stoltir af sínum manni.
Hér er tilvalið viðskiptatækifæri fyrir íslenska banka, stærri fyrirtæki eða auðmenn. Því ekki styrkja okkar yngstu og efnilegustu skákmenn til æðstu metorða í skákinni með því taka ungan og efnilegan skákmann og styrkja hann myndarlega og gerast styrktaraðili viðkomandi skákmanns? Styrkja mætti viðkomandi skákmenn bæði til að tefla á mótum erlendis sem og að fá þekkta erlenda skákkennara.
Hér má t.d. nefna Hjörvar Stein Grétarsson, félagsmenn í Taflfélaginu Helli, sem er aðeins 13 ára, en er þegar farinn að gera sterkustu skákmönnum landsins skráveifu, tefldi í landsliðsflokki Skákþings Íslands, aðeins 12 ára, og sló þar með 20 ára met Hannesar Hlífars og Þrastar Árnasonar. Hjörvar náði líka t.d. að vinna skoska stórmeistarann John Shaw á Kaupþings móti Taflfélagins Hellis, sem fram fór síðustu páska!
Tilvalið viðskiptatækifæri!
Skák | Breytt 21.1.2007 kl. 10:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)